Pistlahöfundur:
  • 17.04.2026

Guðrún á pari eftir fyrsta hring

Female golfer in a black jacket and white cap prepares to swing a driver on a sunny golf course; a yardage sign shows 358 yards in the background
Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Mynd/LET

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur og ríkjandi Íslandsmeistari í golfi, er á meðal keppenda í Joburg Ladies Open móti LET mótaraðarinnar. Mótið fer fram í Suður-Afríku dagana 16.-19. apríl.

Mótið er það sjöunda á LET mótaröðinni í ár en það fyrsta hjá Guðrúnu á tímabilinu. Íslandsmeistarinn vann sér inn þátttökurétt á mótaröðinni með frábærum árangri í úrtökumóti í desember.

Leiknar eru 72 holur á Randpark Golf Club vellinum í Randburg. Völlurinn er par 73 og hefur verið leikinn á DP World Tour í fjölmörg skipti, en þetta er fimmta árið sem völlurinn er leikinn á LET mótaröðinni. Til mikils er að vinna um helgina í Suður-Afríku, en verðlaunafé mótsins eru tæpar fimmtíu milljónir króna.

Randpark Golf Club

Fyrsta hring mótsins lék Guðrún á 73 höggum, eða pari vallarins. Íslandsmeistarinn fékk þrjá fugla og þrjá skolla á hringnum og er jöfn í 74. sætinu. Efstu 60 kylfingar mótsins komast í gegnum niðurskurð eftir annan hring.

Guðrún sló vel samkvæmt tölfræði mótaraðarinnar, hitti þrettán af fjórtán brautum og fjórtán flatir.

Fyrsti hringur Guðrúnar

Hér má fylgjast með stöðu mótsins