Pistlahöfundur:
  • 30.04.2026

Guðrún Brá á meðal keppenda þegar LET mótaröðin heimsækir Máritíus í fyrsta skiptið

Female golfer in mid-swing on a golf course, 18th hole sign and Swiss Ladies Open banner in the background
Guðrún hefur leikið golf um allan heim

Íslenski atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir hefur leik í sínu þriðja móti á LET tímabilinu þegar hún keppir í MCB Ladies Classic mótinu í Máritíus sem hefst á morgun.

Þetta er í fyrsta skiptið sem LET mótaröðin ferðast til Máritíus. Leikið er á Legend vellinum á Constance Belle Mare Plage svæðinu, en völlurinn er par-72 og 5.864 metra langur. Keppendurnir 120 leika þrjá hringi á keppnisdögunum þremur og komast efstu sextíu kylfingarnir í gegnum niðurskurð að tveimur hringjum loknum.

Guðrún í Suður-Afríku í síðustu viku

Guðrún Brá hefur verið á ferðinni síðustu vikur og keppt í tveimur LET mótum í Suður-Afríku. Hún náði ekki í gegnum niðurskurð í mótunum tveimur. Fyrr í vor lék Guðrún í fjórum mótum Sunshine mótaraðarinnar, einnig í Suður-Afríku. Íslandsmeistarinn lék þar frábært golf og endaði tvisvar sinnum í efstu þremur sætunum.

Guðrún á rástíma kl. 12:45 að staðartíma og verður í næstsíðasta holli dagsins.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins