Pistlahöfundur:
  • 14.05.2026

Guðrún Brá hefur leik á Amundi German Masters

Two women in black jackets stand together outdoors, one carrying a golf bag full of clubs by a pond or lake.
Guðrún Birna Snæþórsdóttir er úti með nöfnu sinni

Guðrún Brá Björgvinsdóttir er á meðal keppenda á Amundi German Masters mótinu á LET mótaröðinni sem hefst í dag. Leiknir eru fjórir hringir í mótinu, sem lýkur á sunnudaginn.

Leikið er á Green Eagle Golf Courses, skammt frá Hamborg. Völlurinn er sá erfiðasti í Þýskalandi af öftustu teigum samkvæmt Golfsambandi Þýskalands, en hann hefur áður hýst stór atvinnumót og er einn af þekktari mótavöllum landsins.

Vatn er í leik á sautján holum vallarins

Guðrún þekkir vel til mótsins en hún var einnig á meðal keppenda í fyrra. Þá komst hún í gegnum niðurskurðinn og endaði í 42. sæti eftir góða frammistöðu. Það reyndist hennar næstbesti árangur á mótaröðinni á síðasta ári, og verður spennandi að fylgjast með henni mæta á Green Eagle völlinn á nýjan leik.

Guðrún hefur leik kl. 13:04 í dag af 10. teig og kl. 08:04 af 1. teig á morgun.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins