Pistlahöfundur:
  • 16.04.2026

Guðrún Brá hefur tímabilið á Evrópumótaröðinni

Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Mynd/LET

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur og ríkjandi Íslandsmeistari í golfi, hefur í dag leik í Joburg Ladies Open. Mótið fer fram í Suður-Afríku dagana 16.-19. apríl.

Mótið er það sjöunda á mótaröðinni í ár en það fyrsta hjá Guðrúnu á tímabilinu. Íslandsmeistarinn vann sér inn þátttökurétt á mótaröðinni með frábærum árangri í úrtökumóti í desember.

Leiknar eru 72 holur á Randpark Golf Club vellinum í Randburg. Völlurinn er par 73 og hefur verið leikinn á DP World Tour í fjölmörg skipti, en þetta er fimmta árið sem völlurinn er leikinn á LET mótaröðinni. Til mikils er að vinna um helgina í Suður-Afríku, en verðlaunafé mótsins eru tæpar fimmtíu milljónir króna.

Randpark Golf Club

Í undirbúningi fyrir tímabilið lék Guðrún í fjórum mótum Sunshine mótaraðarinnar í Suður-Afríku. Hún virðist kunna vel við sig í Suður-Afríku og lék frábært golf í mótatörn sinni þar. Guðrún var í baráttu um sigra og endaði m.a. tvisvar sinnum í efstu þremur sætunum.

Joburg Ladies Open verður 64. mót Guðrúnar á þessari sterku mótaröð, en hún lék sitt fyrsta mót á LET árið 2018.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins