Pistlahöfundur:
  • 04.03.2026

Guðrún Brá, Hulda Clara og Andrea hefja leik á morgun í Suður-Afríku

Guðrún Brá, Hulda Clara og Andrea

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir hefja leik á morgun á Standard Bank Ladies Open mótinu á Sunshine atvinnumannamótaröðinni í Suður-Afríku. Mótið fer fram á Durbanville golfvellinum í Cape Town og stendur yfir í þrjá daga. 

Guðrún Brá tók þátt í einu móti á mótaröðinni í síðasta mánuði. Hún náði þá frábærum árangri en hún hafnaði í 3. sæti og fékk tæplega 1,5 milljónir króna í verðlaunafé. 

Hulda Clara og Andrea eiga rástíma í fyrramálið kl. 06:03 á íslenskum tíma og Guðrún Brá hefur leik kl. 06:25. 

Rástímar og staðan í mótinu