Pistlahöfundur:
  • 05.07.2026

Gunnlaugur Árni vinnur Arnold Palmer Cup annað árið í röð

Poster advertising the Arnold Palmer Cup, showing a golfer crouching to putt on a course; large red text reads 'GUNNLAUGUR ÁRNI' with 'ARNOLD PALMER CUP' subtitle and 'TEAM INTERNATIONAL 2026' at the bottom.

Gunnlaugur Árni Sveinsson, ásamt alþjóðlegu úrvalsliði háskólagolfara, hefur sigrað lið Bandaríkjanna á Arnold Palmer Cup, sterkasta áhugamannamóti heims.

Mótið fór fram á Tralee Golf Links golfvellinum á Írlandi dagana 3.-5. júní og var leikið með sama sniði og í Ryder og Solheim bikurunum. Lið Bandaríkjanna spilar við lið alþjóðlegra kylfinga en allir kylfingarnir koma úr bandaríska háskólagolfinu. Liðin samanstanda af 12 körlum og 12 konum.

Gunnlaugur var á síðasta ári fyrsti íslenski kylfingurinn til að fá boð í mótið og endurtók hann leikinn því í ár. Hann skilaði alþjóðlega liðinu tveimur vinningum líkt og í fyrra og jafnaði stærsta sigur mótsins í lokaumferðinni í dag.

Alþjóðlega liðið sigraði lið Bandaríkjanna með minnsta mun, 30.5-29.5 og vinna Arnold Palmer Cup því annað árið í röð. Þetta er einungis í fjórða skiptið á öldinni sem það gerist, en lið Bandaríkjanna hafði einnig unnið í tvö af þeim þremur skiptum sem mótið hafði farið fram á Írlandi.

Fyrsti keppnisdagur

Gunnlaugur lék betri bolta í fyrstu umferð með hinni kólumbísku Maria Jose Marin, sem er fimmta á heimslista áhugakvenna.

Þar mættu þau Max Herendeen og Chloe Kovelesky úr liði Bandaríkjanna, en þau eru bæði í 27. á heimslistum áhugakylfinga. Þau léku gott golf í þessum fyrsta leik mótsins og sigruðu Gunnlaug og Maria 3/2. Staðan var jöfn á milli liðanna eftir fyrstu umferð og því allt opið fyrir leiki helgarinnar.

Fyrsti leikur mótsins

Annar keppnisdagur

Tvær umferðir voru leiknar á öðrum keppnisdegi. Í báðum umferðum var leikinn fjórmenningur.

Daniel Bennett er þrettándi á heimslistanum, Kihei er tólfta og Wheaton er í 58. sæti. Sterkt holl þar á ferð en Gunnlaugur og Daniel léku einn besta hring dagsins og unnu leikinn á átjándu holu, 1/0.

Gunnlaugur og Daniel reyndust gott teymi

Í hinni umferð dagsins var Gunnlaugur paraður með hinni nýsjálensku Caitlin Maurice. Þau mættu bandaríska parinu Mackenzie Lee og Connor Williams og töpuðu leiknum 6/4.

Bandaríska liðið átti frábæran hring

Lokaumferðin

Gunnlaugi gafst tækifæri til að hefna fyrir tapið í gær gegn Connor Williams í lokaumferðinni. Fyrir hana leiddi alþjóðlega liðið með einu stigi, en 24 stig voru í pottinum í lokaumferðinni. Þar léku allir kylfingar beggja liða tvímenning.

Gunnlaugur átti frábæran hring í þessum lokaleik og jafnaði stærsta sigur mótsins með 6/5 sigri á Williams. Okkar maður raðaði inn fuglum og vann alls átta af holunum þrettán.

Stærsti sigur mótsins

Glæsilegur árangur hjá Gunnlaugi og alþjóðlega liðinu sem heldur titlinum og stefnir að því að verja hann á ný á Cherry Hills vellinum árið 2027.