Pistlahöfundur:
  • 15.05.2026

Hákon, Perla og Fjóla efst eftir fyrsta hring

Banner comparing two Icelandic sites: left shows Hólmsvöllur golf course coastline; right shows Kirkjubólsvöllur with grassy field and a distant mountain, with sponsor logos along the top and bold Icelandic title in the center.

Reykjanesmót GS og GSG hófst í dag á Hólmsvelli Golfklúbbs Suðurnesja. Mótið er fyrsta mót tímabilsins á GSÍ mótaröðinni og verða leiknir þrír keppnishringir á þremur dögum. Fyrsti og þriðji hringurinn er leikinn á Hólmsvelli Golfklúbbs Suðurnesja, en annar hringurinn er leikinn á Kirkjubólsvelli Golfklúbbs Sandgerðis.

Smelltu hér fyrir stöðuna

Aðstæður voru krefjandi í dag, en það blés vel á keppendur mótsins.

Hákon Örn Magnússon lék best allra í dag og leiðir karlaflokkinn á fjórum höggum undir pari. Hákon lék hringinn á 67 höggum, fékk þrjá fugla, einn skolla og endaði daginn á glæsilegum erni á átjándu holu.

Fjórir kylfingar eru jafnir í öðru sæti á einu höggi undir pari. Þar á meðal eru Axel Bóasson, þrefaldur Íslandsmeistari í golfi, og Tómas Eiríksson Hjaltested, ríkjandi stigameistari karla.

Hákon lék vel í dag

Perla Sól Sigurbrandsdóttir og Fjóla Margrét Viðarsdóttir eru jafnar á toppi kvennaflokksins, báðar á fjórum höggum yfir pari.

Pamela Ósk Hjaltadóttir er höggi á eftir þeim í þriðja sæti, á fimm höggum yfir pari.

Perla, Fjóla og Pamela léku fyrsta hringinn saman í holli, og leika því aftur saman á morgun. Þær eiga rástíma kl. 15:00 á Kirkjubólsvelli, en það verður spennandi að fylgjast með þeim í Sandgerði á morgun.

Stefnir í spennandi helgi