Pistlahöfundur:
  • 14.06.2026

Hulda Clara Gestsdóttir vann RB Czech Ladies Challenge mótið á LET Access

Woman in black athletic wear mid-swing with a club on a grassy field, event banners in the background.
Hulda í móti helgarinnar

Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, stóð uppi sem sigurvegari á RB Czech Ladies Challenge mótinu á LET Access mótaröðinni sem lauk rétt í þessu. Hulda er því annar íslenski kylfingurinn sem sækir sigur á mótaröðinni, en þetta er einungis hennar fjórða mót.

Hægt er að skoða úrslit mótsins hér

Leikið var á Panorama Golf Resort vellinum í Tékklandi. Hulda lék mótið á pari vallar og spilaði hringina þrjá af ótrúlegum stöðugleika. Hún skilaði inn skorum upp á 72, 72 og 72 högg, og fékk þrjá fugla og þrjá skolla á öllum þremur hringjunum.

Frábær árangur hjá Huldu á sínu fyrsta tímabili sem atvinnukylfingur. Hún hafði hafið sumarið af krafti, náð best áttunda sæti á LET Access og sat í 24. sæti stigalistans fyrir sigurinn. Hún mun fljúga upp listann eftir þennan frábæra árangur.

Hulda var jöfn í sjöunda sæti eftir fyrsta hring mótsins ásamt Ragnhildi Kristinsdóttur, sem varð fyrst íslenskra kvenna til að vinna á mótaröðinni.

Fyrsti hringur Huldu

Hulda var önnur fyrir lokahringinn, einu höggi á eftir efstu konu mótsins.

Annar hringur Huldu

Hulda var orðin jöfn í efsta sæti þegar níu holur voru eftir, en eftir frábæran fugl á tíundu holu leit hún aldrei um öxl og sigldi sigrinum heim.

Lokahringur Huldu

Höggi á eftir Huldu var hin Svissneska Natalie Armbruester á einu höggi yfir pari. Fyrir lokaholuna voru tvö högg á milli hennar og Huldu, en Natalie endaði mótið á fugli.

Frábær árangur hjá Huldu Clöru Gestsdóttur, við óskum henni til hamingju með sinn fyrsta sigur sem atvinnukylfingur.

Andrea Bergsdóttir endaði jöfn í 21. sæti á tíu höggum yfir pari. Hún lék hringina þrjá á 75, 78 og 73 höggum.

Ragnhildur Kristinsdóttir endaði jöfn í 34. sæti á þrettán höggum yfir pari. Hún lék hringi sína á 72, 78 og 79 höggum. Ragnhildur hefur leikið gott golf í sumar og var fimmta á stigalistanum fyrir mótið.