Pistlahöfundur:
  • 12.03.2026

Huldu Clara í toppbaráttunni fyrir lokahringinn í Suður-Afríku

Hulda Clara

Hulda Clara Gestsdóttir lék annan hringinn á 72 höggum eða pari vallar á Jabra Ladies Classic mótinu á Sunshine atvinnumannamótaröðinni í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í dag.

Hulda Clara er jöfn í 7. sæti en er einungis þremur höggum á eftir forystunni. Hulda Clara var í dag á tímabili á tveimur höggum yfir pari líkt og á fyrsta hring en lék stöðugt og gott golf og vann sig til baka á parið. 

Andrea Bergsdóttir lék á 73 höggum og komst í gegnum niðurskurðinn en Guðrún Brá Björgvinsdóttir er úr leik eftir tvo hringi á 76 höggum. 

Staðan í mótinu