Pistlahöfundur:
  • 29.06.2026

Íslandsmót golfklúbba - GA og GKG Íslandsmeistarar 18 ára og yngri

Two groups of young athletes shake hands on a podium as medals and trophies are awarded in front of a blue sponsor wall.

Íslandsmót golfklúbba í aldursflokkum 16- og 18 ára og yngri fór fram á Garðavelli á Akranesi dagana 24.-26. júní. Í flokki 18 ára og yngri var keppt í bæði stúlkna- og piltaflokki, en Golfklúbbur Akureyrar og Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar stóðu uppi sem sigurvegarar mótsins.

Hér má sjá öll úrslit mótsins

Piltar 18 ára og yngri:

Alls mættu níu lið til leiks.

Fyrsti hringur mótsins var 18 holu höggleikur þar sem fjórir kylfingar léku fyrir hverja sveit, en einungis bestu þrjú skorin töldu. Úrslit hans voru notuð til að raða sveitunum niður í þrjá þriggja liða riðla. Sveit GM vann höggleikinn, GKG endaði í öðru sæti og GK í þriðja.

Það var þó sveit GA sem fór ósigruð í gegnum A-riðilinn og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum. Þar mættu þeir sveit GKG sem sótti eitt og hálft sig í sínum tveimur leikjum.

Gunnar Þór Heimisson og Arnar Daði Svavarsson unnu sína leiki í tvímenning og tryggðu GKG með því sigurinn. Jafnt var í fjórmenning og lokatölur því 2.5-0.5 GKG í vil.

Íslandsmeistarar

Nesklúbburinn tryggði sér bronsið eftir bráðabana gegn Golfklúbbnum Keili í leiknum um þriðja sætið.

Stúlkur 18 ára og yngri:

Alls mættu sjö lið til leiks.

Fyrsti hringur mótsins var 18 holu höggleikur þar sem fjórir kylfingar léku fyrir hverja sveit, en einungis bestu þrjú skorin töldu. Úrslit hans voru notuð til að raða sveitunum niður í tvo riðla. Sveit GKG vann höggleikinn, GR endaði í öðru sæti og GA í því þriðja.

Sveitir GA og GK unnu alla leiki sína í riðlakeppninni og mættust í úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn.

Leiknum lauk með 2-1 sigri GA stúlkna, sem eru því Íslandsmeistarar 18 ára og yngri.

Úrslitaleikurinn
Íslandsmeistarar

GKG endaði í þriðja sæti mótsins eftir 2.5-0.5 sigur á sveit GR í leiknum um bronsið.

Frábærum Íslandsmótum golfklúbba lokið. Fimm mót fóru fram á tveimur stöðum og unnu Golfklúbbur Akureyrar og Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar öll mótin. GA vann tvo Íslandsmeistaratitla og GKG þrjá.