Pistlahöfundur:
  • 25.05.2026

Korpubikarinn - Síðasti skráningardagur

Golfer crouching on a green with a putter, part of an outdoor event poster showing dates and sponsor logos in Icelandic text at the top.

Korpubikarinn í samvinnu við FirstWater verður leikinn á Korpúlfsstaðavelli dagana 29.-31. maí næstkomandi.

Mótið er annað mótið á GSÍ mótaröðinni í ár, þar sem bestu kylfingar landsins etja kappi og spila um Korpubikarinn. Skráningu í mótið lýkur í kvöld, mánudaginn 25. maí, kl. 23:59.

 

Smelltu hér til að skrá þig

 

Mótahald fer fram á Korpúlfsstaðavelli á lykkjunum Sjórinn/Áin. Höggleikur í karla og
kvenna flokki þar sem leiknar eru 54 holur, 18 holur á föstudegi, 18 holur á
laugardegi og 18 holur á sunnudegi. 

Eftir 36 holu leik skal leikmönnum fækkað þannig að þau 70% leikmanna sem eru
með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni. 

Rástímar verða birtir á golf.is eftir kl.15:00 á miðvikdeginum fyrir mót. Á fyrsta
keppnisdegi ákveður mótsstjórn röðun í ráshópa en síðan verður raðað út eftir skori.
Ræst verður út alla daga frá kl. 08:00.

Hámarksfjöldi kylfinga í mótið er 132 en að lágmarki 33 kylfingur fær þátttökurétt í
hvorum flokki. Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5. 

Innifalið í mótsgjaldi eru veitingar á fyrsta teig og æfingaboltar í Básum alla
keppnisdaga. Að leik loknum verður boðið upp á Klúbbhúsborgara og drykk alla
keppnisdagana í samvinnu við Klúbbhús Korpu.

Einn æfingahringur án endurgjalds er heimilaður. Vinsamlegast hafið samband við
Golfklúbb Reykjavíkur á netfangið grskrifstofa@grgolf.is til að panta rástíma. Reglur
um æfingahringi er að finna í klúbbhúsinu. 

Allar upplýsingar og skráningu má finna hér