Pistlahöfundur:
  • 25.05.2026

Kristján Karl með besta skorið í sögu Unglingamótaraðarinnar

Four young men standing side by side on a wooden deck, each wearing medals; two hold trophies after a sports event, cloudy sky above.
Hjalti, Kristján, Máni og Halldór

Fyrsta mót Unglingamótaraðarinnar fór fram í Þorlákshöfn dagana 23.-25. maí.

Kristján Karl Guðjónsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar stóð uppi sem sigurvegari mótsins, en hann lék hringina þrjá á tuttugu og einu höggi undir pari. Kristján lék á 65, 64 og 66 höggum og var tuttugu og þrjá undir pari fyrir lokaholuna. Ótrúlegt mót hjá Kristjáni, sem setti með þessu met á Unglingamótaröðinni.

Kristján eftir sigurinn í dag

Kristján var jafn með flesta fugla allra kylfinga, eða nítján talsins. Þá var hann einnig með flesta erni (4) og enginn kylfingur tapaði færri höggum í mótinu. Kristján var með besta meðalskorið á par 3 (2.87), par 4 (3.71) og par 5 (4.2) holum Þorláksvallar. Magnaður árangur hjá þessum efnilega kylfingi, sem var ellefu höggum á undan næsta manni.

65-64-66, magnað skor

Hjalti Kristján Hjaltason, GKG, endaði annar á tíu höggum undir pari. Hjalti lék hringina þrjá á 68, 68 og 70 höggum. Landsliðskylfingurinn fékk sextán fugla í mótinu og tapaði einungis sex höggum, og var jafn Kristjáni með fæst töpuð högg í mótinu.

Hjalti lék frábært golf í Þorlákshöfn

Jafnir í þriðja sæti voru þeir Máni Freyr Vigfússon og Halldór Jóhannsson, báðir úr GK, á níu höggum undir pari.

Frábæru fyrsta móti mótaraðarinnar er lokið, þar sem efstu átta kylfingar piltaflokksins enduðu undir pari. Næsta mót fer fram í Mosfellsbæ dagana 30.-31. maí, sjáumst þar.

Hér má sjá úrslit mótsins