Pistlahöfundur:
  • 03.06.2026

Kylfingar fá fría golfkennslu í nýju ELVA greiningarkerfi

Close-up of a golf putter head on a green putting surface with a blurred practice screen in the background.

ELVA Golf býður kylfingum að taka þátt í þróun nýs íslensks greiningarkerfis fyrir golfkennslu og fá í leiðinni endurgjaldslausa golfkennslu. Hver þátttakandi fær 25 mínútur í kerfinu og slær alls um 20 til 25 högg með mismunandi kylfum. Í framhaldinu fær kylfingurinn persónulega innsýn í gögn og greiningu á sveiflu sinni. Ennfremur fá fimm heppnir þátttakendur 60 mínútna einkakennslu í ELVA kerfinu með ELVA vottuðum golfkennara.

Þetta er einstakt tækifæri fyrir kylfinga til að fá faglega greiningu á sveiflu sinni og taka um leið þátt í þróun íslenskrar tæknilausnar fyrir kylfinga.

Tíminn fer fram í húsnæði ELVA Golf á tímabilinu 11. júní til 10. júlí. Markmiðið er að auka enn frekar nákvæmni ELVA kerfisins sem notar átta háhraðamyndavélar til að greina golfsveiflu kylfinga í rauntíma.

ELVA Golf er til húsa í Suðurhrauni 12C. Sameiginlegur inngangur með Geislatækni og tekið á móti kylfingum í anddyri.

Skráning fer fram í gegnum QR-kóða í auglýsingu eða í gegnum vefslóðina https://shorturl.at/G23mq