Pistlahöfundur:
  • 25.05.2026

Lilja vann og fór holu í höggi

Young atleta holding a trophy and medals at an outdoor award event, standing beside a white flag with red text and logo against a cloudy sky.
Lilja Maren eftir sigurinn

Fyrsta mót Unglingamótaraðarinnar fór fram í Þorlákshöfn dagana 23.-25. maí.

Lilja Maren Jónsdóttir, GA, stóð uppi sem sigurvegari mótsins eftir frábæra spilamennsku á öðrum og þriðja keppnisdegi. Hún lék hringi sína á 77-67-67 og endaði mótið á fimm höggum undir pari, fimm höggum á undan næsta keppanda.

Pamela, Lilja og Bryndís

Lilja var í öðru sæti fyrir lokahringinn en setti tóninn snemma. Hún gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á annarri holu Þorláksvallar. Óskum henni til hamingju með draumahöggið og árangurinn.

Lilja raðaði inn fuglum og fékk sextán slíka á hringjunum þremur, fjórum fleiri en Pamela Ósk sem fékk tólf.

Lilja fékk sextán fugla og holu í höggi

Klúbbfélagi Lilju, Bryndís Eva Ágústsdóttir, endaði önnur. Hún lék hringi sína á 73-70-73 höggum og lauk leik á pari í heildina. Bryndís varð fyrsta eða önnur í öllum mótum síðasta tímabils og heldur því góðu gengi sínu á mótaröðinni áfram.

Hringir Bryndísar

Pamela Ósk Hjaltadóttir, GKG, varð þriðja á þremur höggum yfir pari. Pamela leiddi mótið eftir fyrsta hring og var aldrei langt á eftir, en hún lék hringi sína á 69-77-73 höggum.

Hringir Pamelu

Bestum árangri 15-16 ára stúlkna náði Sara María Guðmundsdóttir, GM. Hún lék á 77-76-72 höggum og var verðlaunuð fyrir árangurinn.

Sara María ásamt verðlaunahöfum 15-18 ára

Frábæru fyrsta móti lokið. Næsta mót fer fram í Mosfellsbæ dagana 30.-31. maí, sjáumst þar.

Hér má sjá úrslit mótsins