Pistlahöfundur:
  • 18.06.2026

Metskráning í Íslandsmót golfklúbba í unglingaflokkum

Group of children with backpacks gathered on a sunny grassy field, some talking near a small cart and a hill in the background.

Mikil eftirvænting ríkir fyrir Íslandsmóti golfklúbba í unglingaflokkum sem fram fer dagana 24.–26. júní. Aldrei hafa fleiri sveitir verið skráðar til leiks og stefnir í eitt fjölmennasta unglingamót í sögu Golfsambands Íslands. Búist er við um 220-270 keppendum frá 14 golfklúbbum.

Keppni í flokki 14 ára og yngri fer fram á Selsvelli á Flúðum en keppni í flokkunum 16 ára og yngri og 18 ára og yngri verður leikin á Garðavelli á Akranesi. Vegna mikillar þátttöku verður golf leikið frá morgni til kvölds alla mótsdagana. Fjöldi keppenda, liðsstjóra og foreldra mun skapa líf og fjör á báðum mótsstöðum þar sem framtíðarstjörnur fá tækifæri til að etja kappi.

Sjá skráningu í Íslandsmót golfklúbba 14 ára og yngri – Selsvöllur á Flúðum

Sjá skráningu í Íslandsmót golfklúbba 16 ára og yngri og 18 ára og yngri – Garðavöllur á Akranesi