Pistlahöfundur:
  • 16.05.2026

Mótavaktin - Sigurður áfram á uppleið

Outdoor banner with large blue text 'MÓTAVAKTIN' and date '16. MAI 2026' over a blurred park background; logo in top-right.
Mótavaktin verður á sínum stað í sumar

Íslenskir atvinnu- og afrekskylfingar halda áfram að koma tímabilinu sínu af stað af fullum krafti og voru margir þeirra á meðal keppenda í mótum víðs vegar um Evrópu í vikunni. Í mótavaktinni fylgjumst við með gengi þeirra og gerum upp mót vikunnar.

LET

Á Ladies European Tour lék Guðrún Brá Björgvinsdóttir á Amundi German Masters mótinu sem fram fer dagana 14.-17. maí á Green Eagle Golf Courses í Þýskalandi. Guðrún náði ekki í gegnum niðurskurð í mótinu en hún lék fyrstu tvo hringina á 78 og 75 höggum. Íslandsmeistarinn lauk því leik á sjö höggum yfir pari í heildina og varð jöfn í 95. sæti.

Fyrri hringur Guðrúnar
Seinni hringurinn

Hér má sjá stöðu mótsins

Nordic Golf League

Á Nordic Golf League voru Sigurður Arnar Garðarsson og Hlynur Bergsson á meðal keppenda á Gamle Fredrikstad Open mótinu sem fór fram dagana 12.-14. maí í Noregi. Hlynur komst ekki í gegnum niðurskurð eftir hringi upp á 74 og 73 högg og endaði á þremur höggum yfir pari, tveimur höggum frá niðurskurðarlínunni.

Hringir Hlyns

Sigurður Arnar hélt áfram góðu gengi sínu á mótaröðinni og endaði jafn í 18. sæti eftir hringi upp á 74, 70 og 68 högg. Sigurður hefur átt gott tímabil til þessa og er nú kominn upp í 30. sæti stigalista mótaraðarinnar. Efstu fimm kylfingarnir á stigalistanum í lok tímabilsins tryggja sér þátttökurétt á HotelPlanner Tour á næsta tímabili.

Sigurður hefur leikið mjög gott golf á tímabilinu

Hér má sjá úrslit mótsins

HotelPlanner Tour

Á HotelPlanner Tour var Haraldur Franklín Magnús á meðal keppenda á Challenge de Catalunya mótinu sem fram fer dagana 14.-17. maí í Girona á Spáni. Haraldur var tveimur höggum frá því að komast í gegnum niðurskurð eftir hringi upp á 70 og 71 högg. Hann lauk leik á þremur höggum undir pari í heildina og var jafn í 79. sæti mótsins.

Hringirnir tveir

Hér má sjá stöðu mótsins