Pistlahöfundur:
  • 05.09.2025

N1 mót Unglingamótaraðarinnar og Golf14 - rástímar, staða og úrslit

N1 mótið á Unglingamótaröðinni og Golf 14 fer fram dagana 6.–7. september á Korpúlfsstaðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.

Unglingamótaröðin

Í flokki 15-18 ára eru leiknar 54 holur og er keppt í höggleik án forgjafar.

Að loknum 36 holum er leikmönnum fækkað þannig að 70% leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni.

Keppt er samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ.


Flokkur 15-18 ára – Smelltu hér fyrir skor og rástíma

advanced divider

Golf 14

Flokkur 13-14 ára í Golf 14 leikur höggleik án forgjafar. Alls eru leiknar 36 holur, 18 á hvorum keppnisdegi. Lykkjurnar Landið/Landið verða leiknar báða dagana. 

Flokkur 12 ára og yngri í Golf 14 leika 9 holur á Landinu, laugardag og sunnudag.

Keppt er samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ.


Golf14 – Smelltu hér fyrir skor og rástíma