Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri Golfsambands Íslands, valdi á dögunum 38 leikmenn í landsliðshóp GSÍ. Hópurinn kom saman í fyrstu æfingabúðir vetrarins dagana 17.-19. nóvember.
Það var frábært að hitta alla kylfingana á ný og hefja nýtt tímabil. Okkar fremstu kylfingar koma af krafti inn í tímabilið enda mörg spennandi verkefni sem bíða þeirra á næsta ári,” segir Ólafur Björn en æfingabúðir hjá landsliðshóp GSÍ fara fram einu sinni í mánuði yfir veturinn þar sem megináhersla er lögð á fjölbreytta fræðslu og keppnislíkar æfingar.
Fyrsta verkefni hópsins í æfingabúðunum fór fram hjá ÍSÍ í Laugardal föstudaginn 17. nóvember þar sem að foreldrum leikmanna var boðið að taka þátt í fyrirlestri. Þar fór Ólafur Björn yfir kynningu á starfseminni í bland við fræðslu um ýmislegt sem tengist afreksgolfi. Auk þess vann hópurinn saman að breytingum í mótahaldi fyrir afrekskylfinga.
Laugardaginn 18. nóvember fóru fram æfingar í aðstöðu GKG í Kórnum og í knattspyrnuhúsinu Fellinu í Mosfellsbæ. Sunnudaginn 19. nóvember æfði hópurinn í aðstöðu Keilis í Hraunkoti.
Í byrjun janúar á næsta ári fer landsliðshópurinn í æfingabækistöðvar GSÍ á Spáni – og er sú ferð hápunktur vetrardagskrárinnar. Það verður í annað sinn sem landsliðshópurinn fer í slíka ferð saman á Hacienda del Alamo. Ólafur segir að mikil tilhlökkun ríki í hópnum fyrir ferðina í janúar.
„Í byrjun þessa árs fórum við í fyrsta sinn með 48 manna hóp á æfingabækistöðvar íslenska landsliðsins á Spáni, Hacienda del Alamo, og munum við endurtaka leikinn í upphaf næsta árs. Það skiptir okkar kylfinga miklu máli að geta æft að vetrarlagi við frábærar aðstæður hvort sem það er í skipulagðri æfingaferð eða á eigin vegum. Við erum mjög ánægð að geta boðið okkar landsliðs- og atvinnukylfingum upp á þetta spennandi tækifæri og hlökkum mikið til ferðarinnar í janúar.” segir Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri GSÍ.

Miðröð frá vinstri: Auður Bergrún Snorradóttir, Fjóla Margrét Viðarsdóttir, Pamela Ósk Hjaltadóttir, Berglind Erla Baldursdóttir, Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Helga Signý Pálsdóttir, Eva Fanney Matthíasdóttir, Sara Kristinsdóttir.
Neðsta röð frá vinstri: Hjalti Kristján Hjaltason, Skúli Gunnar Ágústsson,Hjalti Jóhannsson, Arnar Daði Svavarsson, Snorri Hjaltason, Gunnar Þór Heimisson, og Bjarki Pétursson atvinnukylfingur sem tók þátt á æfingunni. Fremstur á myndinni er Guðjón Frans Halldórsson.








Landsliðshópurinn er þannig skipaður:
| Nafn | Klúbbur |
| Andrea Bergsdóttir | Hills GC |
| Andrea Ýr Ásmundsdóttir | GA |
| Anna Júlía Ólafsdóttir | GKG |
| Arnar Daði Svavarsson | GKG |
| Aron Emil Gunnarsson | GOS |
| Auður Bergrún Snorradóttir | GM |
| Berglind Erla Baldursdóttir | GM |
| Birgir Björn Magnússon | GK |
| Böðvar Bragi Pálsson | GR |
| Dagbjartur Sigurbrandsson | GR |
| Daníel Ísak Steinarsson | GK |
| Eva Fanney Matthíasdóttir | GKG |
| Eva Kristinsdóttir | GM |
| Fjóla Margrét Viðarsdóttir | GS |
| Guðjón Frans Halldórsson | GKG |
| Gunnar Þór Heimisson | GKG |
| Gunnlaugur Árni Sveinsson | GKG |
| Heiðrún Anna Hlynsdóttir | GOS |
| Helga Signý Pálsdóttir | GR |
| Hjalti Jóhannsson | GK |
| Hjalti Kristján Hjaltason | GM |
| Hulda Clara Gestsdóttir | GKG |
| Ingi Þór Ólafson | GM |
| Jóhannes Guðmundsson | GR |
| Kristján Þór Einarsson | GM |
| Kristófer Karl Karlsson | GM |
| Kristófer Orri Þórðarson | GKG |
| Logi Sigurðsson | GS |
| Loa D. Johannsson | GB |
| Markús Marelsson | GK |
| Pamela Ósk Hjaltadóttir | GM |
| Perla Sól Sigurbrandsdóttir | GR |
| Saga Traustadóttir | GKG |
| Sara Kristinsdóttir | GM |
| Skúli Gunnar Ágústsson | GA |
| Snorri Hjaltason | GKG |
| Tómas Eiríksson Hjaltested | GR |
| Veigar Heiðarsson | GA |









