Pistlahöfundur:
  • 26.08.2024

Óliver Elí er Íslandsmeistari í holukeppni 2024 í drengjaflokki 15-16 ára

Frá vinstri: Guðlaugur Þór Þórðarson, GL, Óliver Elí Björnsson, GK og Arnar Daði Svavarsson, GKG.

Íslandsmót unglinga 2024 í holukeppni fór fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði dagana 24.-26. ágúst.

Úrslitin réðust í dag, mánudaginn 26. ágúst.

Til úrslita í drengjaflokki 15-16 ára léku Óliver Elí Björnsson, GK og Arnar Daði Svavarsson, GKG. Þar hafði Óliver Elí betur á fyrstu holu í bráðabana eða 19. holu.

Guðlaugur Þór Þórðarson, GL og Kristján Karl Guðjónsson, GM léku til úrslita um þriðja sætið og þar hafði Guðlaugur betur á fyrstu holu í bráðabana eða 19. holu.

Öll úrslit úr þessum flokki eru hér fyrir neðan.

Frá vinstri: Guðlaugur Þór Þórðarson, GL, Óliver Elí Björnsson, GK og Arnar Daði Svavarsson, GKG.

Smelltu hér fyrir úrslit leikja.