Pistlahöfundur:
  • 21.08.2025

Síðasti skráningardagur í Haustmót NK

Nesvöllur. Mynd/NK

Síðasta mót sumarsins fyrir bestu kylfinga landsins fer fram hjá Nesklúbbnum um helgina. Skráning í mótið er hafin, en henni lýkur í kvöld, fimmtudaginn 21. ágúst kl. 23:59. 

Haustmót NK verður haldið dagana 23.-24. ágúst á Nesvelli á Seltjarnarnesi.

Mótið telur ekki á stigalista GSÍ mótaraðarinnar og ekki á heimslista áhugakylfinga.

Leikinn er 36 holu höggleikur án forgjafar. Leiknar eru 18 holur á laugardegi og 18 holur á sunnudegi.

Hámarksfjöldi keppenda er 48. 

Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 – 32 keppendur

Í kvennaflokki er hámarksforgjöf 8,5 – 16 keppendur

Þeir kylfingar sem enda á meðal 25% efstu kylfinganna hljóta verðlaunafé. Mótsgjald er 15.000kr sem rennur óskipt í verðlaunafé. Sigurvegari mótsins fær 140.000kr í verðlaun. 

Nánari upplýsingar um mótin má finna í keppnisskilmálum í hlekk hér að neðan. 

Smelltu hér fyrir skráningu og alla keppnisskilmála