Pistlahöfundur:
  • 06.06.2026

Ragnhildur og Andrea í gegnum niðurskurð í Frakklandi

Andrea, Hulda Clara og Ragnhildur

Arkea Montauban Ladies Open mótið á LET Access mótaröðinni fer fram dagana 5.-7. júní á Golf de Montauban vellinum í Frakklandi. Mótið er það þriðja á LET Access mótaröðinni í sumar, en þrír íslenskir kylfingar eru á meðal keppenda. Það eru þær Hulda Clara Gestsdóttir, Andrea Bergsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins

Ragnhildur Kristinsdóttir er jöfn í tíunda sæti fyrir lokahringinn á tveimur höggum undir pari. Ragnhildur hefur leikið hringina tvo á 73 og 69 höggum. Einungis þrír kylfingar hafa tapað færri höggum en Ragnhildur í mótinu. Hún hefur nælt sér í fimm fugla og þrjá skolla á fyrstu 36 holunum.

Fyrsti hringur Ragnhildar
Annar hringur Ragnhildar

Andrea er jöfn í 40. sæti á tveimur höggum yfir pari. Hún hefur leikið hringina tvo á 74 og 72 höggum og komst örugglega í gegnum niðurskurð.

Fyrsti hringur Andreu
Annar hringur Andreu

Hulda Clara endaði jöfn í 58. sæti, einu höggi frá niðurskurðarlínunni. Hulda lék fyrsta hringinn á 71 höggi, einum undir pari, og fékk þar einn fugl og sautján pör. Hún var enn á einu höggi undir pari þegar sex holur voru eftir, en lék þær holur fimm yfir pari.

Fyrsti hringur Huldu
Annar hringur Huldu

Andrea hefur leik kl. 09:20 að staðartíma í fyrramálið og Ragnhildur kl. 11:05.