Pistlahöfundur:
  • 17.05.2026

Reykjanesmót GS og GSG - rástímar og staðan

Banner comparing two Icelandic sites: left shows Hólmsvöllur golf course coastline; right shows Kirkjubólsvöllur with grassy field and a distant mountain, with sponsor logos along the top and bold Icelandic title in the center.

Reykjanesmót GS og GSG hófst föstudaginn 15. maí á Hólmsvelli Golfklúbbs Suðurnesja. Mótið er fyrsta mót tímabilsins á GSÍ mótaröðinni.

Smelltu hér fyrir stöðuna

Smelltu hér fyrir rástíma

Í karlaflokki eru 73 keppendur. Þar er meðalforgjöf keppenda +0.36, lægsta forgjöfin er +5.2 og hæsta forgjöfin er 5.4. Í karlaflokki eru 44 keppendur með 0 eða lægra í forgjöf.

Tómas Eiríksson Hjaltested, Axel Bóasson og Kristófer Orri Þórðarson eru þrír forgjafarlægstu kylfingar karlaflokksins. Tómas er ríkjandi stigameistari mótaraðarinnar og stefnir að því að sækja annan titil í sumar. Í dag var gefið út viðtal við Tómas á Vísi, þar sem farið er yfir sumarið og háskólagolfið.

https://www.visir.is/g/20262883352d/-svo-laerir-madur-a-thetta-og-byrjar-ad-blomstra-i-lifinu-og-golfinu-

Tómas og Perla

Í kvennaflokki eru 18 keppendur. Meðalforgjöfin er 2.2, lægsta forgjöfin er +3.3 en sú hæsta er 8.1.

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Pamela Ósk Hjaltadóttir og Eva Kristinsdóttir eru forgjafarlægstu kylfingar flokksins. Perla Sól varð Íslandsmeistari í golfi árið 2022 og vann Guðfinnubikarinn fyrir lægsta skor áhugakylfings á Íslandsmótinu í fyrra. Eva Kristinsdóttir kemur af krafti inn í tímabilið, en hún varð Landsmeistari í golfhermum í byrjun maí.

Keppendur eru alls 91, og koma þeir frá 14 klúbbum víðsvegar af landinu.

GR er með flesta keppendur eða 21 alls, og GKG sendir 19 í mótið. Sex klúbbar eru með keppendur í kvenna- og karlaflokki.