Pistlahöfundur:
  • 26.08.2024

Sara María er Íslandsmeistari í holukeppni 2024 í stelpuflokki 13-14 ára

Frá vinstri: María Högnadóttir, GSE, Sara María Guðmundsdóttir, GM og Katla María, Sigurbjörnsdóttir, GR.

Íslandsmót unglinga 2024 í holukeppni fór fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði dagana 24.-26. ágúst.

Úrslitin réðust í dag, mánudaginn 26. ágúst.

Til úrslita í stelpuflokki 13-14 ára léku Sara María Guðmundsdóttir, GM, og Katla María Sigurbjörnsdóttir, GR, til úrslita. Þar hafði Sara María betur 4/3.

María Högnadóttir varð þriðja en hún sigraði Elvu Maríu Jónsdóttur, GK í leiknum um bronsverðlaunin.

Öll úrslit úr þessum flokki eru hér fyrir neðan.

Frá vinstri: María Högnadóttir, GSE, Sara María Guðmundsdóttir, GM og Katla María, Sigurbjörnsdóttir, GR.


Smelltu hér fyrir úrslit leikja.