Pistlahöfundur:
  • 20.07.2026

Síðasti skráningardagur í Lexus bikar GKG

Aerial view of a golf course with greens, fairways, bunkers, and winding cart paths across rolling hills toward the coastline.

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar heldur Lexus bikarinn dagana 23.-25. júlí. Mótið er sjötta mót tímabilsins á GSÍ mótaröðinni og það síðasta fyrir Íslandsmótið í golfi.

Síðasti skráningardagur í mótið er í dag, mánudaginn 20. júlí. Lokað verður fyrir skráningu kl. 23:59.

Leikfyrirkomulag mótsins er höggleikur í flokki karla og kvenna, 54 holur leiknar, 18 holur á fimmtudegi, 18 holur á föstudegi og 18 holur á laugardegi.

Skráningu og frekari upplýsingar má finna í hlekk hér að neðan.


.