Pistlahöfundur:
  • 18.04.2026

Sigurður Arnar á tíu höggum undir pari

Poster of golfer Sigurdur Arnár mid-swing with '63 -10' graphic, and a bottom scorecard reading 'Sand Valley Spring Series Final'.
Magnaður hringur

Íslenski atvinnukylfingurinn Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, lék ótrúlegt golf á öðrum hring Sand Valley Spring Series Finals mótsins í Póllandi í dag. Sigurður lauk leik á tíu höggum undir pari eftir frábæra spilamennsku.

Sigurður byrjaði hringinn á tíundu holu Sand Valley Golf Resort og fór af stað af krafti, en hann fékk þrjá fugla og örn á fyrstu sex holum hringsins. Á sautjándu holunni bætti hann einum fugli við og lék seinni níu holurnar því á 30 höggum, sex undir pari.

Eftir tvö pör á fyrstu tveimur holum fyrri níu fóru fuglarnir að hrannast inn á ný. Þrír fuglar í röð duttu á holum þrjú, fjögur og fimm, og Sigurður kominn níu undir par eftir fjórtán holur. Fugl á áttundu holunni kom Sigurði tíu undir og par á síðustu holu dagsins fullkomnaði þennan magnaða hring.

Með árangrinum flýgur Sigurður upp stöðutöfluna. Fyrir hringinn var hann jafn í 30. sæti, en hann átti flottan hring í gær upp á þrjá undir par. Sigurður er jafn í fjórða sæti mótsins þegar þetta er skrifað.

Hér má sjá stöðu mótsins

Sand Valley svæðið er talið eitt það besta í Póllandi

Stór hópur íslenskra afrekskylfinga eru einnig á meðal keppenda mótsins, sem er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni sem er sú þriðja sterkasta í Evrópu. Íslensku kylfingarnir eru:

  • Aron Snær Júlíusson, GKG
  • Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
  • Daníel Ísak Steinarsson, GK
  • Hlynur Bergsson, GKG
  • Logi Sigurðsson, GS
  • Sigurður Arnar Garðarsson, GKG
  • Skúli Gunnar Ágústsson, GKG

Aron Snær lék fyrsta hringinn á 71 höggi, en Dagbjartur, Skúli og Logi léku hann allir á 72 höggum. Hlynur lék á 74 höggum og Daníel Ísak kom í hús á 79 höggum.