Pistlahöfundur:
  • 05.06.2026

Þriðja mót GSÍ mótaraðarinnar hefst í Þorlákshöfn - rástímar og staðan

Aerial view of a coastal golf course with green fairways and water hazards, overlaid with event logos and dates in Icelandic text.
Þorláksvöllur - mynd Edwin Roald

Powerade-mót Golfklúbbs Þorlákshafnar hefst laugardaginn 6. júní á Þorláksvelli. Leiknar verða 54 holur á tveimur keppnisdögum, þar sem 36 holur eru leiknar á laugardegi og 18 holur á sunnudegi.

Smelltu hér fyrir rástíma og stöðuna

Í karlaflokki eru 67 keppendur. Meðalforgjöfin er +0.77, lægsta forgjöfin er +5.6 og hæsta forgjöfin er 5.4. Í karlaflokki er 41 kylfingur með 0 eða lægra í forgjöf.

Þrettán efstu kylfingar stigalistans eru á meðal keppenda mótsins. Þar á meðal er Aron Snær Júlíusson, sem hefur unnið fyrstu tvö mót tímabilsins. Aron hefur leikið frábært golf í sumar og stefnir á þriðja sigurinn í Þorlákshöfn.

Sigurður Bjarki Blumenstein vann á Þorláksvelli síðasta sumar, þegar hann lék tvo hringi mótsins á ellefu höggum undir pari. Hann er á meðal keppenda um helgina, ásamt Tómasi Hjaltested, sem þá varð annar.

Efstu fimm í karlaflokki eru allir með

Í kvennaflokki eru fjórtán keppendur. Meðalforgjöfin er 0.15, lægsta forgjöfin er +3.7 en sú hæsta er 5.2.

Perla Sól Sigurbrandsdóttir leikur í sínu þriðja móti í röð, en hún vann fyrsta mót sumarsins og varð önnur á heimavelli í síðustu viku.

Fjóla Margrét Viðarsdóttir og Eva Kristinsdóttir verða báðar á meðal keppenda um helgina, en þær hafa báðar verið í verðlaunasæti í fyrstu tveimur mótunum.

Perla leiðir stigalistann

Perla og Fjóla hefja leik kl. 08:40 á 1. teig ásamt Elsu Maren Steinarsdóttur, GL. Þetta er fyrsta mót Elsu á mótaröðinni í sumar, en hún varð önnur á stigalista kvenna síðasta sumar.

Keppendur eru alls 81, og koma þeir frá 15 klúbbum víðsvegar af landinu.

GR á þar flesta kylfinga eða nítján alls. GKG kemur þar á eftir með sextán keppendur, og GM sendir tólf. Átta klúbbar eru með keppendur í bæði kvenna- og karlaflokki.

GolfklúbburKarlarKonurSamtals
Golfklúbbur Reykjavíkur16319
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar14216
Golfklúbbur Mosfellsbæjar10212
Golfklúbbur Selfoss617
Golfklúbbur Suðurnesja415
Golfklúbburinn Keilir325
Golfklúbburinn Leynir314
Nesklúbburinn303
Golfklúbbur Akureyrar112
Golfklúbbur Álftaness202
Golfklúbbur Ísafjarðar202
Golfklúbbur Bolungarvíkur101
Golfklúbbur Borgarness101
Golfklúbburinn Oddur011
Golfklúbbur Öndverðarness101
Samtals671481