Pistlahöfundur:
  • 19.05.2025

Unglingamótaröðin og Golf 14 - Síðasti skráningardagur í mót í Sandgerði

Skráningu í mót í Unglingamótaröðinni og Golf 14 sem fara fram í Sandgerði lýkur í kvöld, 19. maí kl. 23:59. 

Unglingamótaröðin

Mótið fer fram dagana 23.-25. maí í flokki 15-18 ára og leikinn er 54 holu höggleikur án forgjafar. Að loknum 36 holum skal leikmönnum fækkað þannig að 70% leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni. 

Allar upplýsingar og skráningu má finna í hlekk hér að neðan


Upplýsingar og skráning

Golf 14

Mótið fer fram dagana 24.-25. maí í nokkrum flokkum.

  • 14 ára og yngri 36 holur – leika 18 holur á laugardegi og 18 holur á sunnudegi
  • 14 ára og yngri 9 holur – leika 9 holur á sunnudegi
  • 12 ára og yngri 9 holur – leika 9 holur á sunnudegi

Allar upplýsingar og skráningu má finna í hlekk hér að neðan


Upplýsingar og skráning