Pistlahöfundur:
  • 15.04.2026

Unnið að undirbúningi stækkunar Garðavallar í 27 holur

Svæði golfklúbbsins er glæsilegt

Stjórn Golfklúbbsins Leynis hefur á undanförnum árum unnið markvisst að mótun og þróun hugmynda um stækkun Garðavallar úr 18 í 27 holur, líkt og kemur fram í tilkynningu klúbbsins á samfélagsmiðlum. Verkefnið hefur verið unnið í samstarfi við vallarnefnd félagsins og golfvallahönnuðinn Edwin R. Rögnvaldsson.

Niðurstöður þeirrar vinnu voru kynntar bæjaryfirvöldum á árinu 2023 og síðan þá hefur verkefninu reglulega verið fylgt eftir af hálfu forsvarsmanna klúbbsins.

Mikil aukning hefur orðið í vinsældum golfíþróttarinnar á síðustu árum, sem hefur meðal annars leitt til lengri biðlista í golfklúbba á höfuðborgarsvæðinu. Þá hefur félagsmönnum Golfklúbbsins Leynis einnig fjölgað verulega á skömmum tíma.

Á nýlegum fundi stjórnar GL með bæjarráði og skóla- og frístundaráði Akraneskaupstaðar var tekin ákvörðun um að setja á laggirnar vinnuhóp sem mun fjalla um framtíðarstækkun Garðavallar. Í hópnum verða fulltrúar beggja aðila og er markmið hans að skila útfærðum tillögum um næstu skref í þróun vallarins.

Athyglisvert verður að fylgjast með næstu skrefum í málinu, en uppbygging sem þessi getur skapað aukin tækifæri fyrir kylfinga um land allt.