Pistlahöfundur:
  • 09.07.2025

Vel heppnaður Golfdagur í Stykkishólmi

Golfdagurinn í Stykkishólmi fór fram sunnudaginn 22. júní í Golfklúbbnum Mostra. Þar var ýmislegt í boði fyrir gesti.

Um er að ræða samstarfsverkefni sem GSÍ, KPMG, PGA á Íslandi og GMS standa að.

Mætingin í Stykkishólmi var flott, bjart var yfir svæðinu og golfvöllurinn fallegur. Boðið var upp á skemmtilega kynningu á grunnatriðum íþróttarinnar. Að dagskrá lokinni var gestum Golfdagsins boðið í grill við klúbbhúsið, og þeim færðar gjafir frá KPMG og GSÍ.

Næsti Golfdagurinn er á Sauðárkróki þann 13. júlí, og við vonumst til að sjá sem flesta þar!

Viðburðirnir eru ætlaðir fyrir alla fjölskylduna og eru frábært tækifæri til að kynnast golfíþróttinni.